Við í Kríunesinu óskum þér farsældar og framgangs á þessu nýja ári. Megi þér lánast það sem þú tekur þér fyrir hendur.

Við í Kríunesinu viljum minna á að við bjóðum upp á frábæra fundaaðstöðu í náttúruparadís, rétt við borgarmörkin.

Þrír fundarsalir ásamt miklu aukarými, s.s. setustofur, þannig að ef menn vilja skipta hópum upp í smærri einingar er auðvelt að koma því við. Allar græjur eru í sölunum, s.s. þráðlaust internet, skjávarpi og fléttitafla.

Nú vorar skjótt og viljum við einnig minna á þá afþreyingarmöguleika sem eru í boði hér í Kríunesinu. Kæjakar, fjallahjól, klifurveggur, risa teyjubyssur og golf eru meðal þeirra valkosta sem við bjóðum fyrirtækjum og hópum að njóta sem hópefli eða afþreyingu.

Við bjóðum upp á gistingu í glæsilegum svítum eða venjulegum herbergjum sem öll eru með baðherbergi.

Við bjóðum frábært verð í upphafi árs, endilega hafðu samband og við munum koma þér á óvart.

Kveðja frá Kríunesi.



Glæsilegt jólahlaðborð
og tilboð á gistingu
Jólahlaðborð - Matseðill

Forréttur
Þrjár tegundir síldarrétta.
Graflax, koníakslax og hunangslax.
Reyksoðinn lax.
Sjávarrétta- og hreindýrapaté. Fiskihlaup.
Fiskisósa, sinnepssósa, títuberjasósa og graflaxsósa.


Aðalréttur
Kalt hangikjöt.
Svínapura.
Nautasteik.
Innbakaður heitur lax.

Meðlæti: Brúnaðar kartöflur, kartöflur og jafningur, heimalagað rauð- og hvítkál, salat, gufusoðið grænmeti, grænar baunir og sulta. Heit sveppasósa. Með laxinum er sérstök sósa.

Eftirréttur
Súkkulaðikaka.
Ís, heimalagaður.
Sósur og rjómi.
Kaffi og te.


Við leggjum mikla áherslu á að jólahlaðborðið sé glæsilegt,
en um leið heilsusamlegt. Mikil áhersla er lögð á sjávarrétti og íslenskt grænmeti. Mikið er lagt upp úr forréttum.

Við erum með fjóra borðsali og getum boðið einkasali fyrir hópa.


Frábært verð 5.900 kr.

Tilboð á gistingu

Tveggja manna herbergi á 9.800 kr.
Svítur á 15.000 kr.
Morgunverður innifalinn.

 

Útivist í Kríunesi

Fjallahjól - Kæjakar - Klifurveggur - Golf