Kríunes er frábær staður til að halda fundi og veislur. Flestir ættu að geta fundið sér sal við hæfi og öll þjónusta er veitt á staðnum.
Salur 1, Heiði. [Myndir].Notalegur lítill salur með útsýni yfir Elliðavatn. Tekur 16 manns í sæti. Aukið rými fæst með stórri setustofu.
Salur 2, Berg. [Myndir]. Bjartur salur með fallegu útsýni yfir Elliðavatn og Heiðmörk. Rúmgott hliðarrými. Tekur 30 manns í sæti, ef um veislur er að ræða, allt að 70 manns.
Salur 3, Dalur. [Myndir] Nýr og fallegur salur á neðri hæð. Rúmgóð setustofa með bar. Út af setustofunni er stór verönd með útsýni yfir Elliðavatn. Salurinn tekur hámark 60 manns í sæti í fundaraðstöðu.
Þráðlaus nettenging, skjávarpi, fléttitöflur, te, kaffi og vatn fylgja öllum sölum. Kríunes er með morgunverðarhlaðborð, ávaxtakörfur, morgunhressingu, hádegisverð, síðdegiskaffi, putta/pinnamat og kvöldverð, fyrir þá sem þess óska.