Kríunes við Elliðavatn
Kríunes er sannkallaður herragarður, staðsettur við vatnsbakkann á nesi sem gengur út í Elliðavatnið í landi Vatnsenda.
Umhverfið er rómuð náttúruperla og stendur Kríunes á tveggja hektara landi, sem hefur m.a. að geyma fallegan lund umkringdan hávöxnum trjám og fallega vík með bátabryggju. Fjölskrúðugt fuglalíf er við vatnið og margar fuglategundir verpa þar.
Í Kríunesi er veitingasala. Morgunverðahlaðborð er fastur liður. Einnig er boðið upp á hádegis- og kvöldverð, miðdagskaffi og snakk. Heimabakstur, heimaræktað grænmeti og silungur úr vatninu er í boði í Kríunesi.
Starfsemin í Kríunesi hófst fyrir rúmum áratug og þá með útleigu á tveim herbergjum. Gegnum árin hafa heimamenn stækkað húsakost, fjölgað herbergjum og bætt við fundasölum.
sveit í borg
Kríunes hótel
Kríunesi Vatnsenda - 203 Kópavogi
Símar 567 2245 / 897 0749
Vefpóstur kriunes@kriunes.is
Herbergi með fallegu útsýni
Glæsilegar svítur
˜˜˜˜˜
Fundasalir með fallegu útsýni
Fundir námskeið og veislur
Salur 1 - 2 og 3
Fjölbreytt Útivist
Bátaleiga - Veiði - Golf - Fjallahjól
Klifurveggur - Göngu- og hlaupabrautir
˜˜˜˜˜
Kríunes SPA
Heitur pottur og Sauna klefi